Það er víst orðið ansi langt síðan að eg hef eitthvað látið heyra í mér. Ástæðan er sú að það er alveg hriiikaleeega mikið að gera í skólanum.
Það er ýmislegt búið að gerast a undanförnum vikum, en enginn tími til að rekja það núna.
Helst í fréttum er að mamma mín og Marta frænka mín eru að koma í heimsókn ekki a morgun heldur hinn, og svo kemur hún Ásta frænka mín lika á sunnudaginn þannig að það verður mikill fögnuður.
Önnur gleðitíðindi eru sú að eg fæ að halda yndislegu íbúðinni á Fokke Simonzstraat alveg fram í júní. Þannig að nú stendur yfir leit að samleigjanda frá og með janúar. Er eitthvert ykkar sem að langar að búa í Amsterdam i sex mánuði og borga rándýra leigu og hljóta í þokkabót minn óviðjafnanlega félagsskap??? Ha???
Það fylgir þessu reyndar endalaust vesen. Fyrst lak þvottavélin. Svo bilaði sturtan. Og núna lekur eldhúsvaskurinn.
En þetta reddast allt að lokum. Það er verið að vinna í þessu.
Afleiðingin er sú að hérna sitjum við Helga, angandi af skít, hræddar við að fara út af ótta við að það líði yfir aðra vegfarendur vegna óþefsins.
Í gærkvöld þótti okkur þó komið nóg og kíktum í heimsókn til Hrafnhildar og Hrundar og sníktum sturtu, og svo smá tarot í leiðinni.
Ég hef ekki verið iðin við skrif undanfarið, en ég lofa bót og betrun í bloggheimum................eftir svona tvær vikur.
Gleðilega aðventu og megiði hlakka til jólanna!
(ps. það er komið yfir miðnætti, nú á Oddur afmæli!)

4 Comments:
vei loksins koma fréttir! mikið vildi ég að ég kæmist í heimsókn til þín! tjékka á þessu eftir áramót... gæti leigt hjá þér kannski í svona viku :) híhí
Já endilega! Þú myndir nú ekkert þurfa að leigja, þú gistir bara eins lengi og þig lystir ástin mín!!!
Kitluð!!!! Kíktu á bloggið mitt til að sjá hvað þú átt að gera. Gerðu það bara þegar þú hefur tíma :)
já, ætli ég geri það ekki í jólafríinu ;)
Post a Comment
Links to this post:
Create a Link
<< Home