Friday, November 18, 2005

Þessi er ekkert skrímsli

Hér i Amsterdam er engin Sorpa, og engar ruslatunnur sem að fylgja húsunum. Hér þarf líka enginn að borga fyrir að fara með fyrirferðamikla ruslið sitt á haugana. Nei, hér er sko alvöru þjónusta. Þú bara skellir ruslinu þínu útá götu, tvisvar í viku, og svo er það hirt upp daginn eftir.
Þetta skapar afar hentugan vettvang fyrir fátæka námsmenn sem sjá sér hag í að fara í gegnum annarra manna úrgang. Enda er eins dauði annars brauð. Og eins rusl er annars sófi!

Þannig var það allavega i mínu tilviki. Síðan ég kom hingað hef ég hlustað öfundsjúk á ruslasögur skólafélaga minna.
Þetta hefur gert það að verkum að ákveðna daga er ég mun lengur á leiðinni heim en ella, nefnilega þriðjudaga og fimmtudaga, því miðvikudagar og föstudagar eru jú rusladagar í mínu hverfi.
Hingað til hefur mér þó ekkert áskotnast (annað en vesæl hilla, sem mér tókst þó að búa til ágætis borð úr) en í kvöld bar annað við. Eftir að hafa fengið mér hvítvínsglas ásamt Hrafnhildi og Hollendingnum Danieli ákvað ég að að hjóla nýja leið heim. Þá á ég við Niewe Looierstraat, í staðinn fyrir minn reglubundna Fokke Simonz. Þegar ég var nánast komin á leiðarenda, og orðin úrkula vonar, sá ég glitta í eitthvað ferlíki við enda götunnar. Ég hélt í fyrstu að það væri aðeins pappakassi en er nær dró áttaði ég mig á því að nú hafði ég aldeilis haft heppnina með mér. Þarna stóð þessi líka dýrindis sófi upp á annan endann og hreinlega beið eftir mér. Þetta getum við kallað örlög.
Fyrst í stað varð ég hoppandi glöð en svo stóð ég frammi fyrir miklu vandamáli. Helga er nefnilega i Kaupmannahöfn yfir helgina og það er ekki svo einfalt fyrir eina manneskju að bera heilan sófa

En maður deyr ekki ráðalaus og því hringdi ég í bekkjarbróður minn, hinn svissneska Jeroen, sem að kom með snatri, klukkan eitt um nóttu, og hjálpaði mér að bera sófann yfir í næstu götu, og uppá þriðju hæð. Hann fékk að sjálfsögðu rauðvínsflösku að launum, ásamt inneign í matarboð og undi sáttur við sitt.

Hér að ofan munuð þið svo fá að líta herlegheitin.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Enjoyed a lot! »

16/2/07 5:33 PM  
Anonymous Anonymous said...

Very nice site! video editing programs

16/3/07 9:04 AM  
Anonymous Anonymous said...

Where did you find it? Interesting read Breast lift and augmentation scars pictures Ontario wheel chair accessability orillia Phentermine board Buy mail order contact lenses voip incorporating green cards Find a tech job American pie game pharmacy sell adderall no prescription needed

26/4/07 4:35 PM  
Blogger Actos said...

nice post, it's really interesting for me today, thx

27/6/07 12:08 PM  

Post a Comment

Links to this post:

Create a Link

<< Home