af mer, her

Ganesh og Lotte
Hvar á maður að byrja?
Ég kom tilbaka úr tveggja vikna fríi hjá mínum kæra Kjartani á laugardaginn.
Helga Lilja tók á móti mér á nýja heimilinu okkar, Fokke Simonzstraat 51!!
Þetta er voða hugguleg íbúð á þriðju hæð með stofu, eldhúsi, baðherbergi og risastóru svefnlofti. Hérna er hátt til lofts og bitar kriss og kross á efri hæðinni. Hér er allt til alls auk þess sem staðsetningin er frábær, en því miður höfum við þessa íbúð líklega bara í einn mánuð. Það verður bara að koma ljós.
Eftir að setjast niður í dágóða stund yfir kaffibolla við hið mjög svo elegant borðstofugarðborð fórum við niður í Holtmúlann til að ferja mitt hafurtask uppá Herra Símonfokker. Þar voru krakkarnir frekar rotinboruleg enda nýkomin úr tæpri sólarhrings rútuferð. Við hlóðum á hjólin þartil að við héldum varla jafnvægi á þeim lengur, maður er ekki lengi að safna að sér draslinu. Eftir skrautlega ferð heim kom svo Lotte vinkona Helgu og eldaði risotto fyrir okkur og Ganesh vinur hennar kom líka í mat.
Daginn eftir héldu flutningarnir áfram og núna er nánast allt komið í hús.
Svo á sunnudagskvöldið þegar að við vorum að hafa það huggulegt yfir heimalærdómnum bað ég Helgu um að kveikja á hitaranum, sem er þessi líka forláta svarta tunna í miðri stofunni. Eftir svona tíu mínútur fórum við að taka eftir einhverri ferlega vondri lykt. Ég hélt að þetta væri bara útaf gasinu í hitaranum en Helga ákvað að athuga þetta betur. Þá kom í ljós að ég hafði lagt húfuna mína og heyrnartólin ofan á hitarann og lyktin stafaði af heyrnartólunum sem að voru byrjuð að að bráðna og húfunni sem að var sviðin í gegn.
En, fall er fararheill og það þýðir ekkert að græta slíka hluti.
Svo er ég bara ein núna, því Helga ákvað að skella sér til Berlínar að hitta hann Dóra sinn, en hún kemur aftur í fyrramálið og mikið hlakka ég nú til.


7 Comments:
Dining with the Bloggers - November 9th
Oh dear, I don't know where my head is... I almost forgot about Dining with the Bloggers! No, no, I didn't forget to eat , it just slipped my mind to post... well almost.
Find out how to buy and sell anything, like things related to company construction mn road on interest free credit and pay back whenever you want! Exchange FREE ads on any topic, like company construction mn road!
Scoble in my classroom
ROBERT SCOBLE was caught looking down on me during a lecture in Tipperary Institute .
Find out how to buy and sell anything, like things related to highway construction project on interest free credit and pay back whenever you want! Exchange FREE ads on any topic, like highway construction project!
hæ Steinunn mín! Velkomin í bloggheiminn:)
This is very interesting site...
» »
Best regards from NY! » »
Very cool design! Useful information. Go on! » »
What a great site film editing schools
Post a Comment
Links to this post:
Create a Link
<< Home